Sælir piltar
Þá er komið að bikarleiknum við Fram á morgun, mánudag, klukkan
21:00 í Kaplakrika. Mæting 20:00. Þar sem fjölmenni hefur verið á
æfingum FH-B og enginn boðað forföll þarf að skera hópinn niður. Ég
fer eftir hinni hefðbundnu atvinnumannareglu og vel þá sem hafa
mætt best á æfingar. Hópurinn er eftirfarandi:
Raggi, Fúsi, Hilmar, Höddi, Eiki, Jói, Hemmi, Gaui, Gummi Atli,
Gaui Stykki, Danni, Jói Skagfjörð, Siggi, Elvar, Óli og Beggi.
Ef ég er að gleyma einhverjum sem ykkur finnst klárlega eiga
heima í hópnum þá endilega látið vita hér fyrir neðan. Þetta er
eins og glöggir sjá 16 manna hópur og ef svo ólíklega vill til að
við séum að tapa leiknum þá spila allir.
Menn verða að leggja 1500kr inn á reikning 545-14-606232
kt: 150179-3519 fyrir klukkan 18 á morgun ef þeir ætla að spila.
Hafa nafn sitt í skýringu. Þetta ætti að duga fyrir dómara og þá
smotterí í sjóð líka.
Við þurfum svo að redda einhverjum á klukkuna og fá þeir sem því
redda aukinn spiltíma. Látið vita hér fyrir neðan með það.
Svo mæta menn geggjaðri en áður í leikinn (nema kannski löggan,
hann róar sig bara aðeins) og slátra Hirti og félögum.
kv. Hilmar